tvö ný börn
May 30th, 2008til hamingju Brad og Angelina!
til hamingju Brad og Angelina!
vonandi fá íslenskir hvalveiðimenn að veiða amk. 100 hrefnur, mig langar í sushi og hrefnusteik.
ég ætla hinsvegar að rækta mína einu Hrefnu og nýta til undaneldis!
jæja, ég dreif mig í punginn í haust og tókst að útskrifast með ágætum. þetta finnst mér mjög merkilegt og er virkilega montinn því þetta er fyrsta prófskírteinið sem ég fæ afhent síðan gunni kristjáns útskrifaði mig vorið 1996, þá hét skólinn Grunnskóli Eyrarsveitar. svo gat ég sótt um atvinnuskírteini því pabbi er jú búinn að taka mig með á sjóinn síðan ég var uþb. 6 ára og átti ég nokkra tíma lögskráða sem nýttust við þessa umsókn. svo fór ég til læknis og fékk vottorð um að almenn geðheilsa væri í lagi. voða voða gaman!
þess má geta að mamma tók punginn í haust og fékk 10 í öllu nema einu, þar fékk hún 9
en nú ætla ég að fara að skrifa uþb. 120 jólakort.
hmm já, ég uppfærði bloggið, og allar dagsetningar virðast hafa farið í fokk
that about sums it up,
bless
virkar þetta ennþá?
JÍÍÍÍÍÍÍÍÍÍÍÍÍÍÍÍÍÍÍHHHHHHAAAAAAAAAAAAAAAAAAA !!!!!!!
FI455 London (Heathrow) (LHR) 29.11.2006 23:55 Staðfest koma : 00:16
síðastliðna fjóra mánuði er hrefna búin að vera í mexíkó í sos barnaþorpi.
mér fannst það soldið erfitt fyrst og svo lagaðist það
núna seinustu vikur hafa verið erfiðar því mig langar svo að fá hana heim
í dag er ég búinn að vera svo yfirspenntur að fá hana heim að ég er búinn á því og alveg dauðþreyttur
ca. núna rétt eftir miðnætti ætti hún að vera að labba út úr tollahliðinu og í faðminn á mér
EN NEI BÍÐUM NÚ VIÐ, BILAR EKKI FLUGVÉLIN
hrefna er væntanleg á morgun ![]()
helvítis hehehe þetta ætlar ekki hjá okkur að ganga ![]()
úff ég hélt ég myndi aldrei gera þetta…
en þið kannski fyllið þetta út jah?
1. miðnafnið þitt:
2. Aldur:
3. Single or Taken:
4. Uppáhalds bíómynd:
5. Uppáhalds lag:
6. Uppáhaldshljómsveit:
7. Dirty or Clean:
8. Tattoo eða göt:
9. Þekkjumst við persónulega?
10. Hver er tilgangurinn með lífinu?
11. Myndiru bakka mig upp í slagsmálum?
12. Myndiru þaga yfir leyndarmáli ef það skipti mig máli?
13. Besta minningin þín um okkur?
14. Myndir þú gefa mér nýra?
15. Segðu eitthvað skrýtið um þig:
16. Myndir þú hugsa um mig ef ég væri veikur?
17. Getum við hist og bakað köku?
18. Hefuru heyrt kjaftasögu um mig nýlega?
19. Talaru eða hefuru talað illa um mig?
20. Finnst þér ég góð manneskja?
21. Myndir þú keyra með mér hringinn í kringum landið?
22. Finnst þér ég aðlaðandi?
23. Hverju myndiru vilja breyta í mínu fari?
24. Í hverju sefuru?
25. Kæmiru í heimsókn af tilefnislausu, bara til að chilla?
26. Myndir þú koma á stefnumót ef ég myndi bjóða þér?
27. Ef ég ætti einn dag ólifaðann, hvað myndum við gera?
28. Ætlaru að setja þetta á þína síðu svo ég geti fyllt þetta út?
Í dag var rifin úr mér tönn, vegna þess að hún var svo skemmd.
Í dag skammast ég mín