namm
Thursday, January 1st, 1970Ég fékk mér
* Bugles
* og Kók
í morgunmat..
…já ég er einn heima!
Ég fékk mér
* Bugles
* og Kók
í morgunmat..
…já ég er einn heima!
snúllanías?
AHAHAHAHAHAHAHAHAHA
Já gleðilegt nýtt ár!
Jólin voru skemmtileg, ég vann mikið, Hrefna sæta var fyrir vestan í marga marga marga daga og svo kom nottrulega sætasta systir mín og var hjá okkur. Eyddi svo áramótunum uppí rúmi með tomma og sleppti allri ball/djamm/partý geðveikinni.
Næst á dagskrá er ferð á tónleika THE DARKNESS til skotlands um miðjan febrúar sem ég fékk frá mömmu og pabba í jólagjöf. Hef bara aldrei orðið jafn agndofa yfir neinni gjöf áður jeeeesus þetta er frábært. Fékk sko miða og gistingu fyrir tvo meiraðsegja og ég bauð besta vini mínum með (jú tommi þú ert líka besti vinur minn).
Já og svo setti ég inn svona ramma sem sýnir random myndir úr albúminu mínu á myndir.ekkert.is sem er nottrulega besta myndasíðan! ![]()
pís
I’m dreaming of a white Christmas
Just like the ones I used to know
Where the treetops glisten,
and children listen
To hear sleigh bells in the snow
I’m dreaming of a white Christmas
With every Christmas card I write
May your days be merry and bright
And may all your Christmases be white
I’m dreaming of a white Christmas
With every Christmas card I write
May your days be merry and bright
And may all your Christmases be white
merrí krissmass moðafokkas!!!
Já MSN er búið að vera leiðinlegt undanfarna daga… og í dag er rúmlega helmingurinn af mínum kontöktum offline. Microsoft virðist ekki geta haldið þessu almennilegu og þessvegna bið ég alla um að koma yfir í ljósið og færa sig í Google Talk. Það er rekið af snillingunum hjá Google.
Ef þið viljið bæta mér inn þar þá er ég soffanias hjá gmail punktur com
Ef ykkur vantar að láta bjóða ykkur í GMail (sk. invite) hafið þá samband!
Usa la forse Luke!
Já í dag er það Hátíðarkaffi frá Te & Kaffi.
Þetta skilst mér að sé sérbrennt fyrir þessa árstíð og á að koma manni í jólagírinn eins og skot.
Þetta bragð er ekki upp á marga fiska.. frekar væmið bragð, blandað einhverskonar ávaxtakeim og hátíðarstemmingu er ekki alveg upp á pallborðið hjá alvöru karlmanni eins og mér sem var í tæp 4 ár háseti á risastórum togara. Bragðið er milt með eindæmum og ekki neitt til í þessu kaffi sem kallast mætti “sterkt” eða ákveðið bragð. Vonandi hætta þeir framleiðslunni fyrir jól.
Hátíðarkaffi frá Te & Kaffi fær eina jólamöndlu af 5 baunum mögulegum.
Næst er það Columbia Supremo.
Mokka Sidamo
Já það er ekki mikið um að vera nema botnlaus vinna jú og æfingar með hliðarprojectinu (vona að meðlimir Kvaðratrótarinnar pulli ekki eins og einn Jason Newstead á mig) En ég ætla að blogga um kaffi.
Nú er ég að drekka Mokka Sidamo frá Te & Kaffi, en það er fínmalað í vélinni hérna í vinnunni og er í sterkari kantinum. Góður sopi og nett eftirbragð með einskonar brenndum kakókeim. Með þessu er ég að maula piparkökur frá Frón og að sjálfsögðu eina Winston Light til að binda endahnútinn á athöfnina.
Ég get eindregið mælt með þessari tegund og í næstu færslu mun ég væntanlega prufa þetta með grófmalað.
Mokka Sidamo frá Te & Kaffi fær 3,5 baunir af 5 baunum mögulegum

“soffi þú ert ekki búinn að blogga síðan 2. nóvember!!”
Þetta sagði minn ástkæri faðir um daginn.. það var bæði gott og slæmt. Pabbi greinilega fylgist vel með stráknum sínum bæði í netheimum og kjötheimum. Það slæma er að popeye hefur ekki nema 30 tíma í viku til að skoða síður á netinu, og er ég búinn að eyða þessum dýrmæta tíma í láta hann lesa endurtekið efni ![]()
En.. komum okkur að efni þessa bloggs… efnið er akkúrat það að það var rekið á eftir mér. Ég er mjög ánægður að það sé bara pabbi sem rekur á eftir mér að blogga þessa dagana, því ég hef getað haldið öllum öðrum í skefjum. ÞAÐ ER SVO MIKIÐ UM AÐ VERA að ég held að ég sé að fara yfirum, ég er ekki þessi stressaða týpa að yfirlagi (né undirlagi) en það er orðið mjög scary þegar ég gleymi að borða og taka “vítamínin” mín vegna þess að ég hef of mikið að gera, of mikið að hugsa um og allt of lítinn tíma.
Þetta blogg hljómar eins og copy-paste af einhverju öðru bloggi.. og það er það.. nema að það er búið að vera svona mikið að gera hjá mér í ca. hálft ár og fyrst núna er ég farinn að taka eftir einhverjum einkennum stresss og óskipulags. Frá og með þessu bloggi ætla ég að setja hluti á BIÐ ef að aðrir hlutir eru ekki klárir. Ég ætla að segja NEI ef ég er búinn að segja JÁ við öðrum hlutum sem eru ekki klárir. Og… ég ætla að segja AMEN þegar jólin ganga í garð og þakka dagatalinu fyrir að það séu nógu margir vinnudagar í kringum jólin og hátíðarnar…
..þá kannski kem ég einhverju í verk