smá updeit fyrir jólin
jæja, ég dreif mig í punginn í haust og tókst að útskrifast með ágætum. þetta finnst mér mjög merkilegt og er virkilega montinn því þetta er fyrsta prófskírteinið sem ég fæ afhent síðan gunni kristjáns útskrifaði mig vorið 1996, þá hét skólinn Grunnskóli Eyrarsveitar. svo gat ég sótt um atvinnuskírteini því pabbi er jú búinn að taka mig með á sjóinn síðan ég var uþb. 6 ára og átti ég nokkra tíma lögskráða sem nýttust við þessa umsókn. svo fór ég til læknis og fékk vottorð um að almenn geðheilsa væri í lagi. voða voða gaman!
þess má geta að mamma tók punginn í haust og fékk 10 í öllu nema einu, þar fékk hún 9
en nú ætla ég að fara að skrifa uþb. 120 jólakort.
December 19th, 2007 at 10:20 pm
úlala… en gaman blogg