tannnsi

January 1st, 1970

Í dag var rifin úr mér tönn, vegna þess að hún var svo skemmd.

Í dag skammast ég mín

seigur

January 1st, 1970

já ég hafði það af að blogga… ekkert annað að gera þegar maður er búinn að liggja upp í rúmi veikur að vorkenna sjálfum sér á milli þess sem maður skreppur á dolluna. En ég er alveg harður á því að ég fékk sko enga pest, enda fékk ég þessa fínu sprautu í vinnunni. Ég er nokkuð viss um að þessi veikindi mín eru algjörlega sköpuð af mér og lífstílnum sem ég er búinn að nauðga síðastliðna mánuði. Það er, að borða óreglulega, sofa of lítið, borða einhæfan mat (fólkið á búllunni er farið að þekkja mig) og hreyfa mig ekkert.

Einhverntímann hef ég nú hreyft mig, og er náttúrulega með guðdómlega líkamsbyggingu sem bara öskrar á allskonar íþróttaástundun. Ekki ætla ég að hætta að borða kjöt og það eru 3% líkur á því að ég muni einhverntímann sofa eðlilega. Ég held því reyndar fram að ég hafi ekki sofið almennilega síðan ég hætti á sjónum hjá pabba. Þessvegna ætla ég í ræktina! Hah! Já ég á vona á kommentaflóði og að veðbankar landsins fari á fullt núna. Fokk ðis, ég nenni ekki að verða veikur af eigin roluskap! Hversu sorglegt er það!?

Í ljósi þess að ég er lélegur bloggari eru litlar líkur á því að ég komi með updeit á þessu athæfi, en hver veit.

Svo setti ég inn teljara hér við hliðina sem sýnir hvað það er langt (eða sko stutt) þangað til að elsku bestasta sætasta mússímússí Hrefnan mín kemur heim. DJÖFULS STUÐ VERÐUR ÞAÐ !

over and out

Hátt í tíu sagt upp hjá ratsjárstofnun

January 1st, 1970

Hátt í tíu sagt upp hjá Ratsjárstofnun

Hvað voru þeir margir? einn? eða tveir? eða þrír? eða fjórir? eða fimm? eða sex? eða sjö? eða átta? eða níu? eða akkúrat tíu?

jútúb

January 1st, 1970

kárahnjúkar

January 1st, 1970

já… það er eiginlega bara SKYLDA að blogga núna

ég er staddur á kárahnjúkum, búinn að vera hérna síðan á sunnudagskvöldið :)
skv. öllum reglum átti ég að koma hérna á laugardeginum og fá tour um svæðið frá þeim sem var hérna á undan mér, svona til þess að vita hvað hitt og þetta er osona, en ég vildi gista eina nótt í grundó þar sem að mamma var nýkomin heim, og afþakkaði því þetta introduction- boð. Sá líka fram á það að það væri hundleiðinlegt að vita hvar allt er.. ekkert action og svona við að koma sér á milli staða.

Allavegana… ég lenti á Egilsstöðum og fann bílinn sem við höfum. Þá átti ég BARA eftir að koma mér upp á kárahnjúka ;) Fann bíl merktan IMPREGILO fyrir utan flugstöðina og þar var kínverji að bíða eftir fólki sem var að fara að vinna uppfrá, ég spurði hvort hann væri að fara í “main camp” og já.. ég fékk að elta hann uppeftir.

Það var örugglega það erfiðasta sem ég hef gert það sem af er ferðinni, því nú tók við kappakstur á 120-130km/h ALLA LEIÐ UPPEFTIR, þetta er ekki nema 100km leið og hún tók rétt rúma klukkustund, býst við að einhver tími hafi tapast og hraðinn dottið niður þegar við byrjuðum á kárahnjúkavegi sem er 10° hallandi til að byrja með og minnir helst á Pikes Peak leiðina. Þegar kárahnjúkavegur endar þá er komið inn á “svæðið” þar sem ég þurfti að keyra framhjá stíflunni á veg sem er fyrir neðan hana… dálítið magnað að sjá þúsundir tonna af nýlagðri steypu fyrir ofan sig. Á þessari leið tókum við fram úr ca. þremur búkollum og það er svolítið súrrealískt að vera í rauninni að keyra á sama vegi og þessi skrímsli… hvað þá að nálgast þau.

En fyrsti vinnudagurinn rann upp og var frekar einfaldur.. tæknilega séð.. allt sem þurfti að gera var by-the-book og fór mesti tíminn í að rúlla á milli staðanna og spyrja hinn og þennan hvert ég ætti að fara, það var nebblega trikkið að maður myndi hitta fólk og spjalla við ef maður kann ekki leiðirnar.

Svo í dag þriðjudag var allt við það sama.. eitt og annað að gera en svo fór ég heim til einhvers gaurs sem var ítalskur og komst ekki inn á netið. Ég fór inn í skúrinn sem hann býr í og var fljótlega boðinn bjór sem ég afþakkaði, reddaði netinu svo fljótlega og ætlaði að fara að hypja mig, en þá kom:

ítali: “No mister please sit down, I take your jacket”
ég: “ehhh”
ítali: “please please, have seat you want drink?”
ég: “no thank you”
ítali: “I from italia it is normal to have drink”
ég: “ehhh”
ítali: “campari soda you like?”
ég: “no please no alchohol”
ítali: “ahhh ok you want beer?”
ég: “no please, I must go to main office”
ítali: “yes ok then please, here is campari soda” (og réttir mér camparí í sódavatni með klaka)
ég: “ehh no no thank you I cannot drink and drive the car”
ítali: “yes yes, you like olive?”
ég: “ehhh?”
ítali: “black olive or green better?” (og kemur með sitthvora skálina af grænum og svörtum olívum)
ég: (hugsa afhverju í helvítinu hringir ekki síminn minn núna)
ítali segir mér ævisögu sína
ég kemst út 35 mín síðar

borðaði kvöldmat og er svo sestur hér fyrir framan tölvuskjá

jagalagasjaka

January 1st, 1970

ég er að vinna…

18 ’till I die

January 1st, 1970

Í dag missti ég út úr mér setningu sem ég átti ekki von á fyrr en eftir RÚMLEGA 10 ár:

“ég þarf að kaupa þurrkara”

update:
kíkti á elko.is og fann þar nokkra, skoðaði einnig pelahitara í leiðinni.

hey haus

January 1st, 1970

bara svona tjekka hvort ég var nokkuð búinn að gleyma passwordinu ;)

5 bestu lögin að mati soffa

January 1st, 1970

Jæja, fokk öllum 100 atriða bloggum, en hér kemur the Official Top 50 bestu lög allra tíma að mati soffa:

ábendingar um það sem ætti líka heima þarna eru vel þegnar. (ekki samt hvað ætti ekki að vera þarna)

here goes:

Everlong - Foo Fighters
Be Quiet and Drive - Deftones
Ain’t talking about love - Van Halen
Right now - Korn
Shook me all night long - AC/DC
My Hero - Foo fighters
Black Shuck - Darkness
Killing in the name - Rage Against the Machine
Black Hole Sun - Soundgarden
Mr. Dolly - BrainPolice
One - Metallica
Say it Ain’t So - Weezer
Final thoughts - Obituary
Blitzkrieg Bop - Ramones
Cochise - Audioslave
Rebel Rebel - David Bowie
I think I’m Paranoid - Garbage
Pardon me - Incubus
Straight Outta Locash - CB4 ;) Fell in love with a Girl - White Stripes
Gay bar - Eletric Six
Living Loving Maid - Led Zeppelin
Antisocial - Anthrax
NWA - Fuck tha Police
One Way Ticket to Hell (and back) - Darkness
Purple Haze - Jimi Hendrix
Rock Superstar - Cypress Hill
Angel in Disguise - Mínus
Thriller - Michael Jackson
Y Control - Yeah Yeah Yeahs
Want you Bad - Offspring
Shut up and Dance - Aerosmith
Shot in the Dark - Ozzy Osbourne
Keep on Rocking in the Free World - Neil Young
Blind - Korn
Whish you were here - Pink Floyd
Basket case - Green Day
Rammstein - Rammstein
Sabotage - Beastie Boys
All over you - Live
Tommy the Cat - Primus
Blood Sugar Sex Magik - Red Hot Chili Peppers
Build me up Buttercup - Foundations
JellyBelly - Smashing Pumpkins
More than a feeling - Boston
Creep - Radiohead
Lemonheads - Mr. Robinson
Crazy Beats - Blur
Mamma mia - Abba
Theme’ið úr Shaft - Isaac Hayes

stop bugging me

January 1st, 1970

Já það eru sko allir nema Nelson Mandela búnir að bögga mig á leti minni við að rita hér atburði líðandi stundar.

En fyrir helgi skal ég lofa ykkur einni bestu færslu sem sést hefur amk. á norðurlöndunum.

truly yours

soffi sæti