stop bugging me

January 1st, 1970

Já það eru sko allir nema Nelson Mandela búnir að bögga mig á leti minni við að rita hér atburði líðandi stundar.

En fyrir helgi skal ég lofa ykkur einni bestu færslu sem sést hefur amk. á norðurlöndunum.

truly yours

soffi sæti

I believe in a thing called love

January 1st, 1970

Can’t explain all the feelings that you’re making me feel.

My heart’s in overdrive and you’re behind the steering wheel.

:-) :-) :-) :-) :-)

baugur

January 1st, 1970

Í dag er bjartur og fallegur dagur á íslandi:

http://www.mbl.is/mm/frettir/innlent/frett.html?nid=1190606

bloggediblogg

January 1st, 1970

Pfff MAÐUR ER REKINN TIL AÐ BLOGGA!

Já konurnar tvær á heimilinu í borg óttans bíða spenntar eftir bloggi, enda kannski allt í lagi að þær biðji mig um blogg því þær eru búnar að keppast við að elda kræsingar ofan í litla drenginn.

Já stórborgarlífið er svakalegt… ég þarf yfirleitt að telja upp í tíu á svona tíu sekúndna fresti svo ég tapi mér ekki í asanum hérna í borg óttans. Í vinnunni er hinsvegar svo mikið stuð að ég gleymi því að ég er í reykjavík, glóðvolgar ssh-sessionir líta alveg eins út hvort sem það er í Grundó, Reykjavík eða á Spáni.. ég ssh-a til að gleyma. En ef ég er ekki í vernduðu umhverfi unix tölvu þá er ég í umferðinni í reykjavík á lúsarhraða að þykjast drífa mig einhvert… og yfirleitt er það í annað verndað umhverfi, Granaskjólið hjá Hrefnu minni og Höllu litlu.

Ég á þó hauk í horni… á hverjum morgni mætir mér brosmilt andlit sem lætur allt stress og pirring hverfa eins og dögg fyrir sólu, hann Tommi minn talar líka illa um höfuðborg íslands og sér ekki sólina fyrir Grundarfirði.. það er gott að geta peppað hvorn annan upp í sveitalegum hugsanagangi.

Ljósi punkturinn.. eða punktarnir eru þeir að ég fæ að sofna og vakna með Hrefnu minni.. OG ég fer héðan á miðvikudögum!! :-) Þá er vinnuvikan kláruð í sveitinni, fimmtudag og föstudag (reyndar oft unnið laugardag og sunnudag líka)

Læt þetta nægja.. þarf örugglega að fara að drífa mig einhvert annað.

ipod

January 1st, 1970

“Why do you need 10.000 songs on the go with you? Where are you walking?”
–Carl Pilkington

glasgow!

January 1st, 1970

Hell já, ég og Pabbi McMagnus fórum til Glasgow (og erum reyndar þar enn) til þess að sjá THE DARKNESS, itt woss fúkkín greeettt æ tells ja, wi kim tu de s.e.c en hed ar djos droppd te holl tem itt woss datt fúkkín emeisín. Já og ég lærði smá skosku. Hittum vini mömmu og pabba, El Pel, Jackie Chan og Dave. Við átum BARA góðan mat og var uppbyggingin í honum japönsk þannig að við erum jafn frískir og Maggi McScheving eftir allt þetta sushi. Pabbi keypti sér gítar eftir að sameinuðu þjóðirnar höfðu fundað um það í nokkra mánuði og eftir smá push á bakið frá mér lét hann verða af því. Bjútífúl órans Gretzch gítar mmm.. ég keypti ekki neitt en það munaði hársbreidd og vísaheimild að ég keypti mér ekki 6 strengja bassa… hversu oft sér maður lefthanded 6 strengja bassa á vergangi?

Pabbi og Mamma… takk fyrir frábæra gjöf, peace and love.

og þið hin MYNDIRNAR eru hérna !!

ég segi það aftur! MYNDIRNAR eru hérna

þetta er á veðurstofu íslands

January 1st, 1970

Nú er úti veður vott
verður allt að klessu.
Þetta þykir honum Grími gott
Því hann giftist nærrum því lessu.

namm

January 1st, 1970

Ég fékk mér

* Bugles
* og Kók

í morgunmat..

…já ég er einn heima!

ehhh

January 1st, 1970

snúllanías?

AHAHAHAHAHAHAHAHAHA

vei vei

January 1st, 1970

Já gleðilegt nýtt ár!

Jólin voru skemmtileg, ég vann mikið, Hrefna sæta var fyrir vestan í marga marga marga daga og svo kom nottrulega sætasta systir mín og var hjá okkur. Eyddi svo áramótunum uppí rúmi með tomma og sleppti allri ball/djamm/partý geðveikinni.

Næst á dagskrá er ferð á tónleika THE DARKNESS til skotlands um miðjan febrúar sem ég fékk frá mömmu og pabba í jólagjöf. Hef bara aldrei orðið jafn agndofa yfir neinni gjöf áður jeeeesus þetta er frábært. Fékk sko miða og gistingu fyrir tvo meiraðsegja og ég bauð besta vini mínum með (jú tommi þú ert líka besti vinur minn).

Já og svo setti ég inn svona ramma sem sýnir random myndir úr albúminu mínu á myndir.ekkert.is sem er nottrulega besta myndasíðan! :D
pís