djöfuls andskoti
Já… ég hefði ekki átt að mæta í vinnuna í dag
Búinn að hósta og æla lifur og lungum en það er víst ekki annað í stöðunni því það er einn annar veikur í viðbót… ég verð vonandi orðinn brattur á morgun. Vann aðeins í gærkvöldi og ég held að það hafi gert útslagið með fullan bata. En nóg um ælu.
Netið datt út áðan, og eftir snögga sannfæringu um að ekkert væri að okkar megin ákvað ég að hringja í fyrirtækjaþjónustu Símans. Viti menn! Ég var ca. númer áttatíuogsjöþúsundsexhundruðníutíuogfjögur. Ákvað að reyna ekkert frekar.. og eftir 5 mínútur datt netið inn. Skilst mér að kanína sem kom í morgun með Herjólfi til Þorlákshafnar hafi hlaupið beint í Búrfellslínu 2 og slegið öllu höfuðborgarsvæðinu út.
Já.. það er gott að vera í sveitinni.