Hátíðarkaffi

Já í dag er það Hátíðarkaffi frá Te & Kaffi.

Þetta skilst mér að sé sérbrennt fyrir þessa árstíð og á að koma manni í jólagírinn eins og skot.

Þetta bragð er ekki upp á marga fiska.. frekar væmið bragð, blandað einhverskonar ávaxtakeim og hátíðarstemmingu er ekki alveg upp á pallborðið hjá alvöru karlmanni eins og mér sem var í tæp 4 ár háseti á risastórum togara. Bragðið er milt með eindæmum og ekki neitt til í þessu kaffi sem kallast mætti “sterkt” eða ákveðið bragð. Vonandi hætta þeir framleiðslunni fyrir jól.

Hátíðarkaffi frá Te & Kaffi fær eina jólamöndlu af 5 baunum mögulegum.

Næst er það Columbia Supremo.

One Response to “Hátíðarkaffi”

  1. Lognið Says:

    gott að þurfa ekki að smakka þetta kaffi!

    En hvað fær þá Rautt Rúbín kaffi eins og keypt er á Soffaníasi Cecilssyni og á Grundfirðing margar kaffibaunir?

Leave a Reply

*
To prove you're a person (not a spam script), type the security word shown in the picture. Click on the picture to hear an audio file of the word.
Click to hear an audio file of the anti-spam word