margt betra að gera en þetta :)

“soffi þú ert ekki búinn að blogga síðan 2. nóvember!!”
Þetta sagði minn ástkæri faðir um daginn.. það var bæði gott og slæmt. Pabbi greinilega fylgist vel með stráknum sínum bæði í netheimum og kjötheimum. Það slæma er að popeye hefur ekki nema 30 tíma í viku til að skoða síður á netinu, og er ég búinn að eyða þessum dýrmæta tíma í láta hann lesa endurtekið efni ![]()
En.. komum okkur að efni þessa bloggs… efnið er akkúrat það að það var rekið á eftir mér. Ég er mjög ánægður að það sé bara pabbi sem rekur á eftir mér að blogga þessa dagana, því ég hef getað haldið öllum öðrum í skefjum. ÞAÐ ER SVO MIKIÐ UM AÐ VERA að ég held að ég sé að fara yfirum, ég er ekki þessi stressaða týpa að yfirlagi (né undirlagi) en það er orðið mjög scary þegar ég gleymi að borða og taka “vítamínin” mín vegna þess að ég hef of mikið að gera, of mikið að hugsa um og allt of lítinn tíma.
Þetta blogg hljómar eins og copy-paste af einhverju öðru bloggi.. og það er það.. nema að það er búið að vera svona mikið að gera hjá mér í ca. hálft ár og fyrst núna er ég farinn að taka eftir einhverjum einkennum stresss og óskipulags. Frá og með þessu bloggi ætla ég að setja hluti á BIÐ ef að aðrir hlutir eru ekki klárir. Ég ætla að segja NEI ef ég er búinn að segja JÁ við öðrum hlutum sem eru ekki klárir. Og… ég ætla að segja AMEN þegar jólin ganga í garð og þakka dagatalinu fyrir að það séu nógu margir vinnudagar í kringum jólin og hátíðarnar…
..þá kannski kem ég einhverju í verk ![]()