Mokka Sidamo

Mokka Sidamo

Já það er ekki mikið um að vera nema botnlaus vinna jú og æfingar með hliðarprojectinu (vona að meðlimir Kvaðratrótarinnar pulli ekki eins og einn Jason Newstead á mig) En ég ætla að blogga um kaffi.

Nú er ég að drekka Mokka Sidamo frá Te & Kaffi, en það er fínmalað í vélinni hérna í vinnunni og er í sterkari kantinum. Góður sopi og nett eftirbragð með einskonar brenndum kakókeim. Með þessu er ég að maula piparkökur frá Frón og að sjálfsögðu eina Winston Light til að binda endahnútinn á athöfnina.

Ég get eindregið mælt með þessari tegund og í næstu færslu mun ég væntanlega prufa þetta með grófmalað.

Mokka Sidamo frá Te & Kaffi fær 3,5 baunir af 5 baunum mögulegum

2 Responses to “Mokka Sidamo”

  1. Ísak Ben Says:

    Varstu ekki hættur að reykja krakki!

  2. dabbi Says:

    Gat verið að soffi kappi væri með flottustu heimasíðuna. Ótrúlega flott hjá þér

Leave a Reply

*
To prove you're a person (not a spam script), type the security word shown in the picture. Click on the picture to hear an audio file of the word.
Click to hear an audio file of the anti-spam word