seigur

já ég hafði það af að blogga… ekkert annað að gera þegar maður er búinn að liggja upp í rúmi veikur að vorkenna sjálfum sér á milli þess sem maður skreppur á dolluna. En ég er alveg harður á því að ég fékk sko enga pest, enda fékk ég þessa fínu sprautu í vinnunni. Ég er nokkuð viss um að þessi veikindi mín eru algjörlega sköpuð af mér og lífstílnum sem ég er búinn að nauðga síðastliðna mánuði. Það er, að borða óreglulega, sofa of lítið, borða einhæfan mat (fólkið á búllunni er farið að þekkja mig) og hreyfa mig ekkert.

Einhverntímann hef ég nú hreyft mig, og er náttúrulega með guðdómlega líkamsbyggingu sem bara öskrar á allskonar íþróttaástundun. Ekki ætla ég að hætta að borða kjöt og það eru 3% líkur á því að ég muni einhverntímann sofa eðlilega. Ég held því reyndar fram að ég hafi ekki sofið almennilega síðan ég hætti á sjónum hjá pabba. Þessvegna ætla ég í ræktina! Hah! Já ég á vona á kommentaflóði og að veðbankar landsins fari á fullt núna. Fokk ðis, ég nenni ekki að verða veikur af eigin roluskap! Hversu sorglegt er það!?

Í ljósi þess að ég er lélegur bloggari eru litlar líkur á því að ég komi með updeit á þessu athæfi, en hver veit.

Svo setti ég inn teljara hér við hliðina sem sýnir hvað það er langt (eða sko stutt) þangað til að elsku bestasta sætasta mússímússí Hrefnan mín kemur heim. DJÖFULS STUÐ VERÐUR ÞAÐ !

over and out

Leave a Reply

*
To prove you're a person (not a spam script), type the security word shown in the picture. Click on the picture to hear an audio file of the word.
Click to hear an audio file of the anti-spam word