Archive for the ‘Uncategorized’ Category

golden oldies

Thursday, January 1st, 1970

Já maður er orðinn aðeins hressari… svo hress að ég skannaði inn myndir frá Portúgalsferðinni minni með Gunna Hall. Takið eftir því hvað ég var ýkt nett þétt flippaður á því.

Myndir frá portúgal

Svo muna! ALLIR AÐ FÁ SÉR MYNDASÍÐU

Já og flestir linkarnir eiga nú að fara að virka hérna á þessari frábæru síðu

soffanías siebenstreng

Thursday, January 1st, 1970

JESSS!!!

Nýji gítarinn kominn í hús!! 7 strengja Schecter Blackjack með Seymour Duncan pickupum og TonePro brú æjjkaramba hvað það verður rokkað á þetta kvikindi.

MYND HÉR

hera

Thursday, January 1st, 1970

Í gærkvöld mætti Hera Hjartardóttir til Hrundar Hjartardóttur og Önnu Jobba útá Kaffi 59. Hún var flott og með bara semi-langt og gott prógramm, gaman að sjá hana spila á gítar og svo er hún örugglega fín söngkona ;-)
Lagið sem stóð uppúr var tvímælalaust “Soundcheck Song” sem hún tók fyrst :-)
Jæja, ég ætla að stökkva af stafni skips og fara í vinnuna þennan dag..

its the final countdown

Thursday, January 1st, 1970


nýr server, gamall tommi

Thursday, January 1st, 1970

Já í dag gerðist tvennt skemmtilegt!

Tommi gamli varð 29 ára… sem er akkúrat einu ári meira en 28!

Og myndir.ekkert.is fékk nýjan server… ætti að verða töluvert meira snappy núna… allir að sækja um síðu!!

Já nei það gerðist þrennt!

Bassaleikari kvaðratrótarinnar fékk bassa í afmælisgjöf frá góðu konunni sinni!

margt betra að gera en þetta :)

Thursday, January 1st, 1970


“soffi þú ert ekki búinn að blogga síðan 2. nóvember!!”
Þetta sagði minn ástkæri faðir um daginn.. það var bæði gott og slæmt. Pabbi greinilega fylgist vel með stráknum sínum bæði í netheimum og kjötheimum. Það slæma er að popeye hefur ekki nema 30 tíma í viku til að skoða síður á netinu, og er ég búinn að eyða þessum dýrmæta tíma í láta hann lesa endurtekið efni ;-)
En.. komum okkur að efni þessa bloggs… efnið er akkúrat það að það var rekið á eftir mér. Ég er mjög ánægður að það sé bara pabbi sem rekur á eftir mér að blogga þessa dagana, því ég hef getað haldið öllum öðrum í skefjum. ÞAÐ ER SVO MIKIÐ UM AÐ VERA að ég held að ég sé að fara yfirum, ég er ekki þessi stressaða týpa að yfirlagi (né undirlagi) en það er orðið mjög scary þegar ég gleymi að borða og taka “vítamínin” mín vegna þess að ég hef of mikið að gera, of mikið að hugsa um og allt of lítinn tíma.

Þetta blogg hljómar eins og copy-paste af einhverju öðru bloggi.. og það er það.. nema að það er búið að vera svona mikið að gera hjá mér í ca. hálft ár og fyrst núna er ég farinn að taka eftir einhverjum einkennum stresss og óskipulags. Frá og með þessu bloggi ætla ég að setja hluti á BIÐ ef að aðrir hlutir eru ekki klárir. Ég ætla að segja NEI ef ég er búinn að segja JÁ við öðrum hlutum sem eru ekki klárir. Og… ég ætla að segja AMEN þegar jólin ganga í garð og þakka dagatalinu fyrir að það séu nógu margir vinnudagar í kringum jólin og hátíðarnar…

..þá kannski kem ég einhverju í verk ;)

I’m on a roll!

Thursday, January 1st, 1970

já víst maður er í svona hörkustuði að blogga þá er best að henda inn einni mynd af frænda mínum sem mátaði gleraugun mín um daginn… OG ÁT ÞAU SVO :-)

listi hátíðarinnar

Thursday, January 1st, 1970

Jólagjafalistinn fyrir velunnara soffans ;)
* iPod Nano black
* Heimsfriður
* Keflavík tapi öllum leikjum á næsta ári

Mokka Sidamo

Thursday, January 1st, 1970

Mokka Sidamo

Já það er ekki mikið um að vera nema botnlaus vinna jú og æfingar með hliðarprojectinu (vona að meðlimir Kvaðratrótarinnar pulli ekki eins og einn Jason Newstead á mig) En ég ætla að blogga um kaffi.

Nú er ég að drekka Mokka Sidamo frá Te & Kaffi, en það er fínmalað í vélinni hérna í vinnunni og er í sterkari kantinum. Góður sopi og nett eftirbragð með einskonar brenndum kakókeim. Með þessu er ég að maula piparkökur frá Frón og að sjálfsögðu eina Winston Light til að binda endahnútinn á athöfnina.

Ég get eindregið mælt með þessari tegund og í næstu færslu mun ég væntanlega prufa þetta með grófmalað.

Mokka Sidamo frá Te & Kaffi fær 3,5 baunir af 5 baunum mögulegum

Hátíðarkaffi

Thursday, January 1st, 1970

Já í dag er það Hátíðarkaffi frá Te & Kaffi.

Þetta skilst mér að sé sérbrennt fyrir þessa árstíð og á að koma manni í jólagírinn eins og skot.

Þetta bragð er ekki upp á marga fiska.. frekar væmið bragð, blandað einhverskonar ávaxtakeim og hátíðarstemmingu er ekki alveg upp á pallborðið hjá alvöru karlmanni eins og mér sem var í tæp 4 ár háseti á risastórum togara. Bragðið er milt með eindæmum og ekki neitt til í þessu kaffi sem kallast mætti “sterkt” eða ákveðið bragð. Vonandi hætta þeir framleiðslunni fyrir jól.

Hátíðarkaffi frá Te & Kaffi fær eina jólamöndlu af 5 baunum mögulegum.

Næst er það Columbia Supremo.